Hér getið þið kíkt á nokkrar greinar eins og mínar skoðanir, kenningar, rannsóknir, þjálfunar ráð og margt fleira sem mér finnst við koma Íslenska Fjárhundinum. Flestar greinar eru eingöngu á ensku.
Erum við að útrýma Íslenska Fjárhundinum
Jæja, nú er ég loksins búin að ákveða að það er tímabært að leyfa öðrum að lesa "hugsanir" mínar hvað varða framtíð eða eins og mér finnst líklegra í dag, endalok íslenska fjárhundsins. Ég er kannski frekar harðorð í greininni en það er ekki hægt annað þegar þú skoðar hvernig er komið í stofninum út um allan heim. Ég hef verið það heppin að fá að kynnast tegundinni okkar mjög ítarlega í flestum löndum og get ekki annað en grátið þegar ég hugsa um framtíð þess. Það er alls ekki ætlunin að setja út á einstaka manneskjur en vonandi sjái ræktendur við sér og taka höndum saman um að breyta hundakyninu okkar til baka í gullmolann sem það áður var. Greinin er því miður bara til á ensku en ég vona að hugmyndir mínar komast til skila og að einhverjir nái að finna eitthvað í henni til að koma af stað báli í hjarta þeirra til að bjarga þjóðarhundinum okkar eins og Víkingarnir þróuðu hann.
Are we on the road to destruction - 2.2 mb
Fjársporar
Hér finnurðu kenningu mína um erfðamáta spora. Mjög lítið hefur verið rannsakað í heiminum í sambandi við spora og þá datt mér í hug að taka það verkefni að mér þar sem okkar tegund var í sérflokki hvað það varðar. Kenningin er útkoma þessara gagnasöfnunar. Upphaflega skrifaði ég kenninguna 1996 en ég ákvað að láta það fylgja hér en bætti reyndar við nýlegri teikningum og línurit sem gefa ítarlegri mynd af fjölskyldulínum síðustu ára. Mér fannst upplýsingar frá finnska klúbbnum ómetanlegar til að gefa raunverulegri mynd vegna þess að þau eru með nær fullkomnar upplýsingar sem lítið vantar í. Lét einnig fylgja teikningar af sporum, þegar ég bjó til kenninguna í 1996 þá notaði ég einungis mína eigin hunda og því hafði aðeins tvíspora til að bera saman og til að teikna myndir af. Samt sem áður sést hversu breytileg þeir geta verið en trúi ennþá þann dag í dag að þeir hundar sem bera sterkustu sporana séu mjög fáir og fækka stöðugt.
Ég ákvað að skrifa viðbót til að segja frá skoðunum mínum á gögnum sem ég hef safnað síðustu árin og hvernig þau komu út miðað við upphaflega kenningu. Eins og þú sérð þá finnst mér nýlegri gögn hafa gefið mér svör við spurningum sem ég hafði sjálf í upphaflegu kenningunni.
Dewclaw theory original 1996 - 2.76 mb
Dewclaw theory update 2006 - 1.89 mb
Söguleg lýsing á Íslenska Fjárhundinum
Vore Hunde (Hundarnir Okkar) - 2.47 mb
Útlitsmat
Þegar ég byrjaði að rækta var ég ekki alveg sátt við umsagnirnar sem maður fær á hundasýningum. Þær eru verðmætar á sinn hátt en gefa samt sem áður einungis stutta frásögn skoðandans af bestu eiginleikum eða heildarsvip hvers hunds. Mér fannst að ef ég ætlaði að velja hund sem passaði vel á tík frá mér þyrfti ég að vera með ítarlegri lýsingu á hundinum. Þannig að ég bjó til útlitsmat fyrir íslenska fjárhundinn byggða á markmiði hans. Hugmyndin er að fylla út matið fyrir eigin hunda (best væri ef nokkrir dómarar myndu gera það fyrir þig) og finna svo hund á móti sem bæta upp galla hvors annars.