Fréttir
Endilega fylgist með fréttum á ensku síðunni, uppfært frekar oft með myndum.

Töfra Klói Hektorsson 16 vikna gamall og alveg nauðalíkur Freyju ömmu sinni.
Tímamótafréttir frá USA. Þann 1.júlí 2008 fékk íslenski fjárhundurinn leyfi til að taka þátt á sýningum AKC (American Kennel Club) í fyrsta skipti í sögunni. Þeir eru sýndir ennþá í tegundarhóp sem heitir Miscellaneous sem er sambland af tegundum sem eru ekki nógu fjölmenn ennþá til að vera viðurkenndir (svipað og okkar Úrvalsdeild). Fyrsta sýningin var 6-7 júlí og tók Töfra Kelikátur þátt ásamt barnabarn undan Töfra Ljósálf sem heitir Belglen Risna og var þó nokkuð samkeppni miðað við sýningar þar á landi. Þau urðu Besti Hundur og Annar Besti Hundur Tegundar sem er bara frábært! Kelikátur er 15 mánaða og auk þess að vera Besti Hundur Tegundar fyrsti dagurinn var hann Annar Besti Rakki daginn eftir og náði hann einnig próf sem heitir Canine Good Citizen sem er einskonar sambland af hlýðni og skapgerðarmati. Þannig að hann getur titlað sig Töfra Kelikátur CGC í dag. Við erum ekki smá montin þar sem hann er komin með "sögulega heitið" First BOB Icelandic in AKC Misc.Class.

Töfra Heiða og Bergþór lentu í 4-8 sæti (aðeins 2 fyrstu sætin fengu verðlaun samt) í St. Hubertus heimsmeistaramót fuglahunda og veiðimanna í Belgíu þann 3.okt. 2007. Frábær árangur! Óskum þeim til hamingju. Bergþór keppti fyrir hönd Íslands.

Þessi mynd var tekin á sýningunni á Hamar í fyrra.
Eins og er eru allar fréttir á ensku NEMA það sem eingöngu íslendingar þurfa að vita.
Smellið hér til að lesa fréttir á ensku
Clicker námskeið!
Námskeiðin eru öllum opin og öllum aldursflokkum
Þær eru haldnar uppí Sólheimakot (í nágrenni Reykjavíkur).
Fyrsti dagurinn er fyrirlestur með sýnikennslu. Áætlað milli klukkan 10:30–17:00.
Annar dagurinn verklegur tími með eigin hund frá ca. 10:30-14:30 EÐA 13-17 (fer eftir því hvenær kotið er laust).
Þriðji tíminn leikjakeppni og verklegir æfingar og verður ákveðið í samráði við þátttakendum hvenær hentar best.
Skráning stendur yfir hjá HRFÍ, og verða námskeið haldnir þegar biðlistinn nær uppí fulla þátttöku.
sjá nánar á heimasíðu félagsins http://www.hrfi.is
Áhorfendur án hunds eru velkomnir en þurfa einnig að skrá sig gegn vægu gjaldi
Upplýsingar
Monika og Rúnar
monika@tofradogs.com GSM: 895-1502
runar@tofradogs.com GSM: 865-4165
Okkar ástkæru Foldar Freyja yfirgaf okkur og þennan heim þann 10.mars 2008 kl.17:30 eftir mjög erfið veikindi.
Hún verður alltaf í hjörtu okkar.
